|
Dagskrá foreldramorgna á haustmisseri 2010 |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 12:19 |
|
Foreldramorgnar eru alla miðvikudagsmorgna frá kl. 10:00 - 12:00 í safnaðarheimilinu Brekkuskógum 1. Umsjón hefur Gréta Konráðsdóttir djákni. 8. sept. Dekurstund með Volare. Boðið verður upp á nudd á axlir og maska á hendur. Létt kynning á heilsuvörum Volare. 22. sept. Fræðsla: Guðrún Hrefna Sverrisdóttir félagráðgjafi kemur í heimsókn og kynnir þjónustu við foreldra ungra barna á Álftanesi. 6. okt. Kynning: ,,Krílasálmar" fyrir börn á fyrsta ári og foreldra þeirra. Guðný Einarsdóttir organisti kynnir. 20. okt. Fræðsla: ,,Næring og svefn ungbarna" Heiða Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur. 10. nóv. Fræðsla: ,,Að ná tökum á streitunni" Bryndís Einarsdóttir sálfræðingur kemur og spjallar um streitu og hvernig hægt er að ná tökum á henni og njóta fæðingarorlofsins. 1. des. Jólasögur, jólasiðir, jólalög. 15. des. Jólastund, heitt súkkulaði og huggulegheit. Sr. Hans Guðberg og Bjartur Logi organisti hafa umsjón með söngstund barnanna. |
|
Upphaf starfs eldri borgara í Litlakoti miðvikudaginn 1. september kl. 13:00 |
|
|
|
|
Mánudagur, 30. ágúst 2010 15:44 |
|
Opið hús eldri borgara verður í Litlakoti alla miðvikudaga frá kl. 13:00 - 16:00
Opið hús verður með sama sniði og síðastliðna vetur, alla miðvikudaga verður spiluð vist og bridds en boðið verður upp á skemmtun og fræðslu af ýmsu tagi u.þ.b. einu sinni í mánuði.
Kaffi og heimabakað meðlæti er að hætti Álftnesinga og helgistund er í lok hverrar samveru. Umsjón með opnu húsi hefur Gréta djákni.
Allir eldri borgarar velkomnir. |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 30. ágúst 2010 15:48 |
|
|
Göngumessa - farið verður um Álftanesgötu |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 10:29 |
"Göngumessa" verður frá Garðakirkju sunnudaginn 8. ágúst kl. 20.00. Prestur Friðrik J. Hjartar – organisti Bjartur Logi Guðnason. Byrjað verður með stuttri helgistund í kirkjunni en síðan verður genginn "Fógetastígur" um Gálgahraun sem einnig heitir “Álftanesgata”. Gangan tekur um 30 mínútur. Þetta er hluti af gömlu þjóðleiðinni niður á Álftanes. Rifjaður upp sögulegur fróðleikur tengdur lifnaðarháttum og samgöngum. Hressing að leiðarlokum við hringtorg neðan Sjálands. Bílar verða sóttir þaðan.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 10:30 |
|
Foreldramorgnar hefjast aftur að loknu sumarleyfi miðvikudaginn 4. ágúst |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 27. júlí 2010 11:39 |
|
Foreldramorgnar eru í Brekkuskógum 1 alla miðvikudaga frá kl. 10-12. Allir foreldrar ungra barna á Álftanesi hjartanlega velkomnir. Leikföng fyrir börnin eru á staðnum og öll aðstaða eins og best verður á kosið. Boðið er upp á kaffi/djús og kex. |
|
|
Þriðjudagur, 25. maí 2010 11:50 |
|
Vikuna 14.-18. júní 2010 (4 dagar) Fyrir 6-10 ára börn, fædd 2000-2004.
Sumardagar kirkjunnar verða að Brekkuskógum 1 vikuna 14.-18. júní frá kl. 9:00-12:00. Leikir, söngur, fræðsla, föndur, ferðalag og margt fleira skemmtilegt verður á Sumardögunum. Bessastaðasókn býður upp á ávaxtasafa í nestistímanum en börnin koma sjálf með nesti. Vanir leiðtogar úr barnastarfi kirkjunnar hafa umsjón með Sumardögunum ásamt Maríu Birnu Sveinsdóttur sem verður til aðstoðar fyrir hönd Bessastaðasóknar. Athugið að helgistund verður í safnaðarheimilinu Brekkuskógum 1, 17.júní kl 13.30 en í þeirri helgistund munu börnin syngja nokkur lög.
Nauðsynlegt er að skrá börnin fyrir 10. júní 2010 hjá Hans Guðbergi með tölvupósti á netfangið:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
(þar þarf að koma fram fullt nafn barnsins, nöfn foreldra/forráðamanna og símanúmer). Sumardagarnir eru í boði Bessastaðasóknar.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 25. maí 2010 12:01 |
|
Fermingar 2011 - skráning |
|
|
|
|
Föstudagur, 07. maí 2010 10:17 |
|
Árið 2011 eru fermingar í Bessastaðakirkju á eftirfarandi dögum: Laugardaginn 2. apríl kl. 13:00 Sunnudaginn 3. apríl kl. 13:00 Laugardaginn 9. apríl kl. 13:00
Hægt er að skrá fermingarbörn og velja fermingardag hér: SKRÁNING |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 10. maí 2010 13:52 |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 3 |